Við greinum hlaupastíl, líkamsbeitingu, styrk, hreyfanleika og stöðugleika. Þú færð skýrar niðurstöður, einstaklingsmiðaðar æfingar og endurmat til að fylgjast með framförum.
Fræðsla og ráð frá þjálfurum RunFit um hlaupatækni, styrk, forvarnir og markvissari þjálfun.
Hjá RunFit trúum við því að skilningur á hreyfimynstri sé lykillinn að betri árangri, hagkvæmari hreyfingu og minni líkum á meiðslum.
3D hlaupagreining er háþróuð greiningaraðferð sem metur hvernig þú hreyfir þig á hlaupum. Ólíkt hefðbundinni hlaupagreiningu, sem byggir oft á sjónmati, safnar 3D greiningin nákvæmum þrívíddargögnum um hreyfingar og líkamsbeitingu.
Tæknin notar myndavélar og skynjara til að fylgjast með hreyfingum liða og útlima í rauntíma. Þannig fæst nákvæm og heildstæð mynd af hlaupastíl, hreyfiferlum og því hvernig líkaminn vinnur í hverju skrefi.
Hafþór hefur yfir 16 ára reynslu af styrktarþjálfun og hlaupaþjálfun og hefur unnið með fjölbreyttum hópi einstaklinga, allt frá byrjendum í hlaupum til afreksfólks í íþróttum á borð við handbolta, fótbolta og körfubolta.
Hafþór hefur yfir 16 ára reynslu af styrktarþjálfun og hlaupaþjálfun og hefur unnið með fjölbreyttum hópi einstaklinga, allt frá byrjendum til lengra kominna hlaupara og íþróttafólks.
Hann hefur sterkan faglegan bakgrunn á sviði styrktarþjálfunar, einkaþjálfunar, hlaupagreiningar og hlaupaþjálfunar. Sú menntun og reynsla nýtist sérstaklega vel við að greina hlaupastíl, meta hreyfimynstur og setja upp markvissar æfingar fyrir hlaupara og annað íþróttafólk.
Áherslan er á að bæta tækni, byggja upp styrk og styðja við betri hreyfingu, aukinn árangur og minni líkur á meiðslum.
Í gegnum árin hefur Hafþór meðal annars starfað sem styrktarþjálfari hjá Haukum, HK og Breiðabliki. Þá var hann aðalþjálfari Hlaupahóps Breiðabliks í 9 ár, þar sem hann kom að uppbyggingu hlaupara á ólíkum getustigum og aðstoðaði þá við að ná sínum markmiðum.
Hjá RunFit er lögð áhersla á persónulega nálgun, vandaða greiningu og æfingar sem eru sniðnar að hverjum og einum. Markmiðið er að hjálpa hlaupurum að hlaupa betur, styrkjast og njóta hlaupsins til lengri tíma.
Jón Oddur er stofnandi Sportlab, hann er með áratuga reynslu af þjálfun við ýmiskonar hreyfingu, allt frá styrktarþjálfun einstaklinga yfir í þjálfun fyrir lengri þolíþróttir eins og Ironman.
Jón Oddur er stofnandi Sportlab, hann er með áratuga reynslu af þjálfun við ýmiskonar hreyfingu, allt frá styrktarþjálfun einstaklinga yfir í þjálfun fyrir lengri þolíþróttir eins og Ironman. Síðustu 15 árin hefur hann varið mestum tíma í þolíþróttum eins og hjólreiðum, hlaupum og þríþraut. Á þessum tíma hefur hann tekið að sér sérvalda einstaklinga í einkaþjálfun bæði hérlendis og erlendis. En hann er einnig þjálfari hjá hinu virta þjálfunarfyrirtæki Peaks Coaching Group.
Jón Oddur er með meistaragráðu í Exercise Science and Coaching frá Háskólanum í Reykjavík, og meistaraverkeni hans snérist um öndunartíðni og öndunarmagn í áhuga hjólreiðafólki og hlaupurum.