Viltu hlaupa markvissar, bæta formið og hafa skýra stefnu í æfingunum þínum?
RunFit Online hlaupahópur er fyrir hlaupara sem vilja æfa skipulega, halda sér í góðu hlaupaformi og byggja upp sterkan grunn fyrir stærri markmið, hvort sem það er hálfmaraþon, maraþon eða önnur hlaup.
Æfingarnar koma beint inn í TrainingPeaks og þú færð 4–5 hlaupaæfingar á viku, settar upp af þjálfara með áherslu á framfarir, jafnvægi og skynsamlegt álag.
Planið er hannað til að henta breiðum hópi hlaupara. Það er eitt plan fyrir alla, líkt og í hefðbundnum hlaupahópum, en æfingarnar eru settar upp þannig að auðvelt er að aðlaga þær að getu, reynslu og markmiðum hvers og eins.
Þannig færðu skýrt skipulag, markvissa uppbyggingu og sveigjanleika til að æfa á þínum forsendum.
Mánaðargjald: 5.900 kr. / Árgjald: 59.900 kr.
*Ef greitt er fyrir allt árið, gildir ekki með mánaðaráskrift.
Þessi þjónusta hentar sérstaklega vel fyrir hlaupara sem:
Þjálfunin er fyrir hlaupara sem vilja æfa markvissar, halda sér í góðu formi og hafa skýrt skipulag í æfingunum. Hún hentar bæði þeim sem eru að byggja upp form og þeim sem eru að undirbúa sig fyrir stórar áskorannir eins og hálfmaraþon eða heilt maraþon.
Athugið: Þetta er ekki sérsniðið maraþonplan, heldur almenn hlaupaþjálfun sem byggir upp góðan grunn fyrir þá sem vilja síðar takast á við maraþonundirbúning.
Æfingarnar eru yfirleitt 4–5 á viku og koma beint inn í TrainingPeaks.
Þetta er sameiginlegt æfingaplan fyrir hópinn og því ekki einstaklingsmiðað, en æfingarnar eru settar upp þannig að auðvelt er að skala þær eftir getu, reynslu og markmiðum hvers og eins.
Nei, ekki endilega. Þjónustan hentar hlaupurum sem geta hlaupið reglulega og vilja bæta sig með markvissri þjálfun. Ef þú ert alveg að byrja að hlaupa gæti þó verið betra að byrja á byrjendaprógrammi.
Æfingar eru yfirleitt í kringum 60 mín og í kringum 90 mín um helgar.
Æfingarnar koma inn í TrainingPeaks, þar sem þú sérð æfingar vikunnar, markmið hverrar æfingar og leiðbeiningar.
Já, TrainingPeaks tengist mörgum hlaupaúrum og öppum, til dæmis Garmin, Suunto, Polar, COROS og Zwift. Þannig getur þú fengið æfingarnar beint í úrið þitt ef búnaðurinn styður það.
Innifalið í þjónustunni er aðgangur að þjálfara þegar spurningar vakna um æfingar, álag, framvindu eða markmið.
Samskipti fara fram í gegnum fjarfundarbúnað, til dæmis Google Meet, Teams eða Facebook Messenger, eftir því hvað hentar hverju sinni. Til að tryggja gott utanumhald og að þjálfari geti gefið sér nægan tíma þarf að panta viðtalstíma í gegnum vefinn.
Þannig færðu tækifæri til að ræða æfingarnar, fá leiðbeiningar og stilla af næstu skref í þjálfuninni.
Hlaupagreining er greining á hlaupastíl, hreyfimynstri og þáttum sem geta haft áhrif á hlaupatækni, hagkvæmni og álagsmeiðsli. Innifalið í ársgjaldinu er ein hlaupagreining að verðmæti 19.900 kr. og 25% afsláttur af næstu mælingu.
Já. Þeir sem eru í hópnum geta keypt sérsniðið maraþonplan með 40% afslætti.
Árgjald: 59.900 kr.
Innifalið í ársgjaldinu er ein þrívíddar hlaupagreining að verðmæti 19.900 kr. Greiningin nær yfir hlaupastíl og hreyfimynstur, en inniheldur ekki sérsniðnar styrktar- eða liðleikaæfingar sem fylgja hefðbundinni ítarlegri hlaupagreiningu. Meðlimir fá einnig 25% afslátt af næstu mælingu.