Hvernig fer hlaupagreining hjá RunFit fram?

Hlaupagreining hjá RunFit er ítarlegt ferli þar sem við skoðum ekki bara hvernig þú hleypur, heldur líka hvernig líkaminn hreyfir sig, stjórnar álagi og býr til kraft. Markmiðið er að finna þau atriði sem geta hjálpað þér að hlaupa á hagkvæmari hátt, bæta tæknina og minnka líkur á álagsmeiðslum.