Bættu hlaupatæknina með 3D hlaupagreiningu

3D Hlaupagreining

3D hlaupagreining hjá RunFit hjálpar þér að skilja hvernig þú hleypur, hvar þú getur bætt hlaupatæknina og hvaða æfingar geta stutt við betri hreyfingu. Við skoðum hlaupastíl, líkamsbeitingu, styrk, hreyfanleika og stöðugleika og þú færð skýra niðurstöðu, æfingar í appi og endurmat til að mæla framfarir.

Hvað er 3D hlaupa- og hreyfigreining?

Hjá RunFit trúum við því að skilningur á hreyfimynstri sé lykillinn að betri árangri, hagkvæmari hreyfingu og minni líkum á meiðslum.

3D hlaupagreining er háþróuð greiningaraðferð sem metur hvernig þú hreyfir þig á hlaupum. Ólíkt hefðbundinni hlaupagreiningu, sem byggir oft á sjónmati, safnar 3D greiningin nákvæmum þrívíddargögnum um hreyfingar og líkamsbeitingu.

Tæknin notar myndavélar og skynjara til að fylgjast með hreyfingum liða og útlima í rauntíma. Þannig fæst nákvæm og heildstæð mynd af hlaupastíl, hreyfiferlum og því hvernig líkaminn vinnur í hverju skrefi.

Mælanlegar framfarir með 3D hlaupagreiningu

Við trúum því að leiðin að betri árangri sé stöðugt ferli. Með 3D hlaupagreiningu fáum við nákvæm gögn sem nýtast bæði við fyrstu áætlun og til að fylgjast með framförum til lengri tíma.

Með reglulegri eftirfylgni og endurmati getum við séð hvað hefur batnað, gert nauðsynlegar breytingar og tryggt að þú sért alltaf að vinna markvisst í átt að þínum markmiðum.

Þetta ferli gerir okkur kleift að fínstilla æfingar, tækniáherslur og leiðréttingar út frá raunverulegum gögnum en ekki ágiskunum.

Hvort sem þú ert að koma til baka eftir meiðsli eða vilt bæta frammistöðu, hjálpar gagnadrifin nálgun þér að byggja upp sterkari, hagkvæmari og heilbrigðari hlaupara.

Af hverju að fara í hlaupagreiningu?

Margir hlauparar finna fyrir endurteknum álagsmeiðslum, stirðleika eða að hlaupin verða þyngri en þau þurfa að vera. Með hlaupagreiningu er hægt að skoða hvernig líkaminn vinnur í hverju skrefi, hvort lending, skref, líkamsstaða, mjaðmastjórn, ökklahreyfing eða styrkur hafi áhrif á hlaupastílinn.

Markmiðið er ekki að breyta þér í annan hlaupara, heldur finna þau atriði sem geta hjálpað þér að hlaupa betur, með meiri stjórn og betri hagkvæmni.

Fyrir hverja er hlaupagreining?

Hlaupagreining hentar bæði byrjendum og lengra komnum. Hún er sérstaklega gagnleg fyrir þau sem vilja bæta hlaupatækni, ná meiri hagkvæmni, vinna markvisst gegn álagsmeiðslum eða fá skýrari mynd af því hvað má bæta í hlaupatækninni.

Hvort sem markmiðið er að byrja að hlaupa, bæta tímann í keppni eða hlaupa verkjalaus, þá getur hlaupagreining hjálpað þér að taka næsta skref.

Þinn ávinningur

Hlaupagreining er fyrir hlaupara sem vilja hlaupa á hagkvæmari hátt, bæta tæknina og minnka líkur á álagsmeiðslum.

Í greiningunni skoðum við hlaupastílinn þinn með 3D tækni þar sem hreyfingar, líkamsbeiting og hlaupatækni eru greind í rauntíma. Við förum einnig yfir hreyfanleika, styrk, stöðugleika og líkamsstöðu til að sjá hvaða þættir geta haft áhrif á hlaupin þín.

Markmiðið er ekki að breyta öllum hlaupastílnum þínum, heldur finna þau atriði sem geta hjálpað þér að hlaupa betur, hagkvæmar og með meiri stjórn.

Eftir greininguna færðu skýra samantekt, ráðleggingar og einstaklingsmiðaðar styrktar-, liðleika- og tækniæfingar sem þú getur áfram unnið með.

Hvað er innifalið í hlaupagreiningu hjá RunFit?

Verðskrá hlaupagreiningar

Veldu þá leið sem hentar þínum markmiðum. Hvort sem þú vilt fá skýra mynd af hlaupatækninni, vinna markvisst í styrk og hreyfanleika eða fylgja eftir með endurmælingu, þá færðu einstaklingsmiðaða greiningu og ráðleggingar sem hjálpa þér að hlaupa betur, hagkvæmar og með meiri stjórn.

Stöðumat, ráðleggingar og æfingar

Hlaupagreining
19.900 kr Pakki 1
  • 3D hlaupagreining
  • Yfirferð á hlaupastíl
  • Yfirferð á hreyfimynstri
  • Mat álagsþoli
  • Ráðleggingar út frá niðurstöðum
  • Æfingar í appi í 3 vikur
  • Skýr framvinduáætlun

Greining, æfingar í appi og endurmat

Hlaupagreining + endurmat
29.900 kr Pakki 2
  • Allt úr pakka 1
  • Endurmat eftir 2–3 vikur
  • Ný mæling til að sjá framfarir
  • Yfirferð á breytingum í hlaupastíl
  • Aðlögun á æfingum eftir þörfum
  • Skýr næstu skref eftir endurmat
  • Æfingar í appi í 6 vikur
Mest valið

Fyrir tækni, styrk og hreyfigæði

Hlaupagreining & styrkur
49.900 kr Pakki 3
  • Allt úr pakka 2
  • Styrktar- og hreyfanleikamat
  • Sérsniðnar styrktaræfingar
  • Liðleika- og hreyfanleikaæfingar
  • Tækniæfing með þjálfara
  • 2 endurmöt / framvindumælingar
  • Æfingar í appi í 8 vikur

Myndir frá 3D hlaupagreiningu

Hvernig fer hlaupagreining fram?

Við byrjum á stuttu samtali þar sem farið er yfir hlaupareynslu, æfingasögu, markmið og mögulega meiðslasögu. Þannig fáum við betri mynd af því hvað þarf að skoða sérstaklega í greiningunni.

Áður en hlaupagreiningin fer fram skoðum við grunn hreyfiferla, liðleika, stöðugleika og líkamsbeitingu. Þar er meðal annars hægt að skoða hreyfanleika í mjöðmum, ökklum og hrygg, jafnvægi, stjórn á einum fæti og styrk í þeim svæðum sem skipta miklu máli í hlaupum. Slík skimun hjálpar okkur að sjá hvort ákveðnar takmarkanir í hreyfingu, styrk eða stöðugleika geti haft áhrif á hlaupastílinn. Þetta er í takt við Running Readiness Assessment nálgunina, þar sem markmiðið er að meta hvort líkaminn sé tilbúinn fyrir þær líkamlegu kröfur sem hlaup gera.

Næst fer fram hlaupagreining með 3D tækni þar sem hlaupastíllinn er skoðaður nánar. Þar greinum við meðal annars hreyfingar, líkamsstöðu, skref, lendingu og álag í hlaupinu. Út frá niðurstöðunum sjáum við hvaða þættir geta verið að hafa áhrif á tæknina og hvar tækifæri eru til úrbóta.

Eftir greininguna fær hlauparinn styrktar- og liðleikaæfingar. Æfingarnar eru valdar út frá niðurstöðum greiningarinnar og miða að því að bæta hreyfiferla, styrk, stöðugleika og liðleika. Þannig fær hver og einn skýrar æfingar til að vinna markvisst í þeim atriðum sem komu fram í greiningunni.

Að lokum kemur hlauparinn aftur í hlaupagreiningu þar sem breytingar eru skoðaðar og árangur metinn. Þá er hægt að sjá hvernig tæknin hefur þróast og hvort æfingarnar hafi skilað sér í betri hreyfingum, meiri stjórn og skilvirkari hlaupastíl.

Hver hlaupari fær persónulega skýrslu með helstu niðurstöðum úr hlaupagreiningunni, ábendingum um hlaupatækni og tillögum að æfingum til að bæta hreyfiferla, styrk og liðleika. Hér að neðan má sjá nokkur skjáskot úr skýrlunum. 

Hlaupagreiningin tekur yfirleitt um 60 mínútur. Þar förum við yfir hlaupareynslu, markmið, hreyfiskimun, 3D hlaupagreiningu og helstu niðurstöður.

Nei. Hlaupagreining hentar bæði byrjendum og lengra komnum. Hún er sérstaklega gagnleg ef þú vilt bæta hlaupatækni, byrja skynsamlega eða fá skýrari mynd af því hvað þú getur unnið með.

Þú færð skýra samantekt, ráðleggingar og æfingar sem miða að því að bæta styrk, hreyfanleika, stöðugleika og hlaupatækni.

Já, hún getur hjálpað til við að skoða hreyfimynstur og álagsþætti sem gætu tengst endurteknum vandamálum. Greiningin kemur þó ekki í stað læknis- eða sjúkraþjálfunargreiningar ef um meiðsli eða verki er að ræða.

Það fer eftir markmiðum, æfingasögu og því hversu vel æfingunum er fylgt eftir. Í mörgum tilfellum sjáum við strax breytingar í hlaupatækni og hreyfimynstri á meðan greiningunni stendur.

Til að breytingarnar festist þarf þó að þjálfa nýja tækni, styrk og hreyfingu markvisst yfir tíma. Endurkoma í greiningu hjálpar okkur að mæla hvort breytingar á tækni, styrk og hreyfingu séu að skila sér og hvað þurfi að vinna áfram með.