Algeng hlaupameiðsli og hvernig hlaupagreining getur hjálpað

Hlaup er einföld hreyfing, en álagið sem fylgir hverju skrefi getur verið mikið. Í hverju hlaupi endurtekur líkaminn sömu hreyfinguna aftur og aftur, oft þúsundum sinnum. Ef styrkur, hreyfigeta, hlaupatækni eða álagsstýring er ekki í jafnvægi getur álagið safnast upp og aukið líkur á álagstengdum meiðslum.