Markvisst hlaupanámskeið fyrir hlaupara sem vilja skilja hlaupastílinn sinn betur, bæta hlaupatækni og hlaupa á hagkvæmari hátt. Námskeiðið sameinar fræðslu, 3D hlaupagreiningu, verklegar tækniæfingar og styrktar- og liðleikaæfingar sem þú vinnur með áfram eftir námskeiðið.
Margir hlauparar æfa reglulega en hafa aldrei fengið markvissa kennslu í hlaupatækni. Á þessu hlaupanámskeiði lærir þú hvernig líkamsstaða, skrefatíðni, lending, mjaðmastjórn, styrkur og hreyfanleiki hafa áhrif á hlaupastílinn þinn. Markmiðið er að gefa þér skýr verkfæri til að hlaupa betur, nýta orkuna betur og minnka óþarfa álag á líkamann.
Farið er yfir helstu atriði í hlaupatækni, algeng mistök hjá hlaupurum og hvernig styrkur, hreyfanleiki og líkamsbeiting hafa áhrif á hlaupastíl. Einnig er kynnt hvernig 3D hlaupagreining virkar og hvað hægt er að læra af niðurstöðunum.
Lengd: 60-75mín
Hver þátttakandi kemur í stutta hlaupagreiningu þar sem hlaupastíll, hreyfingar og líkamsbeiting eru skoðuð með 3D tækni. Þátttakendur fá helstu atriði sem þeir þurfa að vinna í til að bæta tækni og hlaupa á hagkvæmari hátt.
Lengd: 60–75 mín.
Farið er út á hlaupabraut þar sem þátttakendur læra hlaupadillur, tækniæfingar og einfaldar leiðir til að bæta hlaupastílinn. Æfingin byggir á því sem kom fram í greiningunni og þátttakendur fá verkfæri til að halda áfram að æfa tæknina sjálfir.
Lengd: 90 mín.
Farið er yfir styrktar- og liðleikaæfingar sem hjálpa þátttakendum að vinna áfram með hlaupatæknina eftir námskeiðið. Hver þátttakandi fær aðgang að æfingum í appi eða lokuðu svæði og fylgir 3 vikna plani sem miðar að því að bæta styrk, hreyfanleika og hlaupastíl.
Lengd: 75 mín. + 3 vikna fjarþjálfun.
Námskeiðið er fyrir hlaupara á öllum stigum, bæði byrjendur og vana hlaupara sem vilja bæta hlaupastíl, hlaupa hagkvæmar og minnka líkur á meiðslum og um leið fá dýpri skilning á hlaupatækni.
Nei. Námskeiðið snýst ekki um að hlaupa hratt eða langt, heldur að læra betri tækni, skilja eigin hlaupastíl og fá æfingar sem henta til áframhaldandi uppbyggingar.
Þú færð skýrari mynd af því hvernig þú hleypur og hvaða atriði þú þarft helst að vinna í, til dæmis varðandi líkamsstöðu, skrefatíðni, hreyfingar og líkamsbeitingu.
Já. Þátttakendur fá styrktar- og liðleikaæfingar á lokuðu svæði til að vinna með næstu 3 vikurnar
Góða hlaupaskó, þægilegan æfingafatnað og vatnsbrúsa. Fyrir verklega tímann á hlaupabraut er gott að mæta tilbúin/n í létta hlaupaæfingu.