Run Fit býður upp á faglega hlaupagreiningu með 3D tækni, þar sem hlaupastíll, hreyfingar og líkamsbeiting eru skoðuð í smáatriðum. Í kjölfarið fær hlauparinn einstaklingsmiðaðar ráðleggingar og sérsniðnar æfingar í appi til að bæta tækni, styrk og hreyfigetu. Markmiðið er að hjálpa þér að hlaupa betur, draga úr óþarfa álagi og byggja upp sterkari grunn fyrir hlaupin þín.
Við byrjum á stuttu samtali þar sem farið er yfir hlaupareynslu, æfingasögu, markmið og mögulega meiðslasögu. Þannig fáum við betri mynd af því hvað þarf að skoða sérstaklega í greiningunni.
Áður en hlaupagreiningin fer fram skoðum við grunn hreyfiferla, liðleika, stöðugleika og líkamsbeitingu. Þar er meðal annars hægt að skoða hreyfanleika í mjöðmum, ökklum og hrygg, jafnvægi, stjórn á einum fæti og styrk í þeim svæðum sem skipta miklu máli í hlaupum. Slík skimun hjálpar okkur að sjá hvort ákveðnar takmarkanir í hreyfingu, styrk eða stöðugleika geti haft áhrif á hlaupastílinn. Þetta er í takt við Running Readiness Assessment nálgunina, þar sem markmiðið er að meta hvort líkaminn sé tilbúinn fyrir þær líkamlegu kröfur sem hlaup gera.
Næst fer fram hlaupagreining með 3D tækni þar sem hlaupastíllinn er skoðaður nánar. Þar greinum við meðal annars hreyfingar, líkamsstöðu, skref, lendingu og álag í hlaupinu. Út frá niðurstöðunum sjáum við hvaða þættir geta verið að hafa áhrif á tæknina og hvar tækifæri eru til úrbóta.
Eftir greininguna fær hlauparinn styrktar- og liðleikaæfingar í appi. Æfingarnar eru valdar út frá niðurstöðum greiningarinnar og miða að því að bæta hreyfiferla, styrk, stöðugleika og liðleika. Þannig fær hver og einn skýrar æfingar til að vinna markvisst í þeim atriðum sem komu fram í greiningunni.
Að lokum kemur hlauparinn aftur í hlaupagreiningu þar sem breytingar eru skoðaðar og árangur metinn. Þá er hægt að sjá hvernig tæknin hefur þróast og hvort æfingarnar hafi skilað sér í betri hreyfingum, meiri stjórn og skilvirkari hlaupastíl.
Hver hlaupari fær persónulega skýrslu með helstu niðurstöðum úr hlaupagreiningunni, ábendingum um hlaupatækni og tillögum að æfingum til að bæta hreyfiferla, styrk og liðleika. Hér að neðan má sjá nokkur skjáskot úr skýrlunum.