Hlaupagreining

Ný þjónusta sem sameinar greiningu, þjálfun og uppbyggingu fyrir hlaupara, þríþrautarfólk og annað íþróttafólk þar sem hlaup gegnir lykilhlutverki.

Hlaupagreining og þjálfun

Þjónusta í boði

Hlaupagreining og þjálfun

Þjálfarar RunFit

Hlaupaþjálfari FunFit

Hafþór Rafn Benediktsson

Hefur yfir 16 ára reynslu af styrktarþjálfun og hlaupaþjálfun og hefur unnið með fjölbreyttum hópi einstaklinga, allt frá byrjendum til lengra kominna hlaupara og íþróttafólks.

Þjálfari RunFit hefur yfir 16 ára reynslu af styrktarþjálfun og hlaupaþjálfun og hefur unnið með fjölbreyttum hópi einstaklinga, allt frá byrjendum til lengra kominna hlaupara og íþróttafólks.

Hann hefur sterkan faglegan bakgrunn á sviði styrktarþjálfunar, einkaþjálfunar, hlaupagreiningar og hlaupaþjálfunar. Sú menntun og reynsla nýtist sérstaklega vel við að greina hlaupastíl, meta hreyfimynstur og setja upp markvissar æfingar fyrir hlaupara og annað íþróttafólk. Áherslan er á að bæta tækni, byggja upp styrk og styðja við betri hreyfingu, aukinn árangur og minni líkur á meiðslum.

Í gegnum árin hefur hann meðal annars starfað sem styrktarþjálfari hjá Haukum, HK og Breiðabliki. Þá var hann aðalþjálfari hlaupahóps Breiðabliks í 9 ár, þar sem hann kom að uppbyggingu hlaupara á ólíkum getustigum og aðstoðaði þá við að ná sínum markmiðum.

Hjá RunFit er lögð áhersla á persónulega nálgun, vandaða greiningu og æfingar sem eru sniðnar að hverjum og einum. Markmiðið er að hjálpa hlaupurum að hlaupa betur, styrkjast og njóta hlaupsins til lengri tíma.